Wednesday, November 16, 2011

Bangsa-og dóta æfing var hjá Gumma og stelpunum í 7. flokk í gær.

Stelpurnar í 7. flokk hafa verið svo duglegar á æfingum að undanförnu og á mótinu um seinustu helgi að þær gerðu sér glaðan dag og brutu aðeins upp æfingaformið.

Þær höfðu frjálsan tíma þar sem þær máttu mæta með bangsa- eða annað dót á æfinguna og farið var í leiki, búnar til þrautabrautir og ýmislegt annað skemmtilegt gert.

Virkilega gaman að sjá þessar hressu og skemmtilegu stelpur sem æfa handbolta hjá okkur í ÍR.




Fleiri myndir eru á myndasíðu 7.flokks kvenna

Handboltinn býður upp á frábært tækifæri til að eignast góða vini og tilheyra skemmtilegum hópi.

Við erum með frábæra þjálfara sem taka vel á móti ykkur og það er alltaf pláss fyrir fleiri hressa krakka hjá ÍR handbolta.

No comments:

Post a Comment