ÍR Handbolti - 7. flokkur kvenna
Skráðu netfangið þitt hér hægra megin á síðunni! Þannig færðu tilkynningar hér á bloggsíðunni sendar í netpósti.
mánudagur, 30. apríl 2012
MYNDATAKA - ALLIR FLOKKAR - SKYLDUMÆTING
Það verður myndataka af öllum flokkum í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma).
Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.
SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING!
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING.
Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verður óvænt uppákoma sem enginn ÍRingur vill missa af
Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR
sunnudagur, 15. apríl 2012
Komnar myndir frá Selfossmótinu 13. og 14. apríl
ÍR stelpurnar í 7. flokk mættu með 4 lið á Selfossmótið. Keppt var á föstudag og laugardag og stóðu ÍR stelpurnar sig frábærlega vel. Kvöldvakan á föstudagskvöldið lagðist einkar vel í leikmenn enda var Gummi þjálfari tekinn upp á svið og látinn sýna töfrabrögð. Frábær skemmtun með frábærum krökkum, þjálfurum og foreldrum.
Foreldrar ef þið eruð með myndir og vantar aðstoð við að setja þær inn á myndasíðu flokksins hafið samband við netstjóra BOGUR sem munu gjarnan leiðbeina ykkur eða setja myndirnar á síðuna fyrir ykkur. Hér eru leiðbeiningar. Þegar bætt er við myndum setjið þær gjarnan í sama albúm.

föstudagur, 13. apríl 2012
Við viljum að að foreldrar haldi áfram með "Leikmannasöguna" á myndasíðu flokks
ÍR á 9 flott lið í þessu móti sem verður hjá 7.flokk karla og kvenna á Selfossi nú um helgina. Við mætum með 5 lið í 7fl. karla og 4 lið í 7fl. kvenna.
Við hvetjum ykkur foreldrar sem farið á mótið að taka nú myndir af krökkunum og setja inn á myndasíður hjá flokkunum. Ef þið eruð ekki viss hvernig þetta er gert er bara að láta þjálfara fá myndirnar á USB og þeir koma þeim áleiðis á vefstjóra ÍR Handbolta sem setja þær þá inn fyrir ykkur.
Það gerist ekkert að sjálfu sér, ...þið eruð fréttamenn okkar og skráið sögu ÍR Handbolta með því að taka myndir.
Öllum myndum er hlaðið inn á myndasíður og Facebook ÍR Handbolta í þeim gæðum sem Blog-síður bjóða upp á til þess að leikannasaga flokks myndist í myndum.
Við viljum að að næstu foreldrar haldi áfram með "Leikmannasöguna" á myndasíðu flokks og hlaði inn myndum sem þeir taka af mótum og viðburðum sem leikmenn viðkomandi flokks taka þátt í.
Myndirnar verða geymdar þar þannig að þegar þessi hópur af krökkunum okkar verður kominn upp í meistaraflokk, þá sjá strákar og stelpur sem eru að byrja að stunda handbolta eftir 10 ár hverjir hafa farið í gegnum þennan 7.- , 6.- , 5- ,........ og upp í meistaraflokk.
Þannig að tilvonandi fyrirmyndir og landsliðsmenn og konur næstu kynslóða "Strákarnir & Stelpurnar okkar" verða hér í myndum á blog-síðum og Facebook ÍR Handbolta.
Myndaalbúm hjá stelpunum inniheldur nú 9 albúm og þar eru t.d. myndir frá Selofss móti í fyrra
https://picasaweb.google.com/irstelpur7fl
Myndaalbúm hjá strákunum inniheldur 2 albúm og er það hér
https://picasaweb.google.com/110492215652211417773
Myndbönd eiga ekki að fara í þessi albúm, heldur á YouTube rás viðkomandi flokks.

fimmtudagur, 29. mars 2012
Selfoss mótið
Hæ öll.
Þá er komið að mótinu sem allir bíða eftir :) Landsbankamótið á Selfossi.
Farið verður á Selfoss föstudaginn 13. april ca kl 14:00 og komið til baka á laugad 14. april.
Ég þarf að fá staðfest sem fyrst hverjir komast annaðhvort með email ghpalsson@gmail.com eða sms 897-3388.
kostnaður verður 5-6.000.- kr og erum við að skoða einhverjar fjáraflanir fyrir stelpurnar.
Innifalið er gisting 1 nótt , 2 heitar máltíðir og morgunverður. Einnig verður haldin kvöldvaka og frítt er í sund á meðan á móti stendur.
foreldraráðið kemur saman í kvöld til að skipuleggja framhaldið, þannig að nánari uppl koma síðar.
kveðja Gummi Páls.

fimmtudagur, 22. mars 2012
Allir að mæta á leik ÍRinga og Víkinga föstudag kl.19:30
Mikilvægur leikur fyrir okkur öll sem tengjast ÍR handboltanum, nánar um leikinn >>HÉR<< Allir að mæta í hvítu og bláu. Íspinnar í boði ÍR fyrir 6, 7 og 8. flokk. Grillið opið á milli kl.18:00 og 19:00 hamborgari + gos + aðgangur kr. 500- fyrir kl. 19:00. Hefðbundin miðasala eftir kl. 19:00 ókeypis aðgangur fyrir 16 ára og yngri.
![]() |
| Siggi á flugi hátt yfir Víkingum |
laugardagur, 25. febrúar 2012
ÞIÐ GETIÐ STÓRAUKIÐ TEKJUR ÍR HANDBOLTANS
Foreldrar, iðkendur og aðrir ÍRingar!
Nú er BOGUR að fara af stað með sölu á auglýsingum inn á breyttum bloggsíðum ÍR Handboltans. Allar tekjur munu renna óskiptar í handboltastarfið. Vefstjórar gefa alla sína vinnu og þið eruð ekki síður mikilvæg þar sem umferð/heimsóknir á síðunum skipta höfuðmáli fyrir sölu á auglýsingum á netinu.
Þetta getur þú gert til að auka umferðina á ÍR handboltabloggsíðunum.
- Skrá þig í áskrift á aðal bloggsíðu. >Leiðbeiningar<
- Skrá þig í áskrift á bloggsíðu þíns flokks. >Leiðbeiningar<
- Myndir auka umferð. Taktu myndir af þínum flokk.>Leiðbeiningar<
- Notaðu hvert tækifæri til að fara inn á bloggsíður ÍR handboltans.
- Áframsendu slóð þíns flokks til vina og vandamanna.
- Síðast en ekki síst að gerast vinur ÍR handboltans á Facebook
Munið að þegar þið fáið sjálfvirkan netpóst frá bloggsíðunum með tilkynningu eða frétt sem þið klikkið á, þá eruð þið að auka væntanlegar auglýsingatekjur ÍR Handboltans.
Vertu vinur okkar á Facebook, klikkaðu hér--->
og LIKE!
ÍR kveðjur frá Netstjórum (BOGUR)
Vertu vinur okkar á Facebook, klikkaðu hér--->
ÍR kveðjur frá Netstjórum (BOGUR)
sunnudagur, 12. febrúar 2012
Frábær árangur hjá stelpunum í 7. fl. á 6. fl. móti
Stelpurnar í 7. flokk stóðu sig heldur betur vel á móti hjá 6. flokks stelpunum núna um helgina sem var haldið í Austurbergi. Þær kepptu um 1. sætið í sinni deild við Aftureldingu sem hafði betur eftir æsispennandi leik. Þannig að ÍR stelpurnar lentu í 2. sæti.
Flottur hópur hér á ferð, framtíðar landsliðsstelpur.
Subscribe to:
Posts (Atom)